Upplifun í hjarta Alsace

Itinéraire Site Web

Upplifun í hjarta Alsace Komdu sem gestur – farðu sem vinur. Fyrir framan svítuna er lítil setustofa sem gestir hafa líka til afnota. Við getum sótt gesti á flugvöllinn.

Gisting með morgunverði, persónuleg aðstoð og rólegt umhverfi í nálægð við Strasbourg.
🛏️ Svíta með sérbaði
🍽️ Morgunverður og hálft fæði í boði
🚐 Akstur til/frá Basel flugvelli
🐾 Hundavænt heimili 🌿 Upplifun í hjarta Alsace
Komdu sem gestur – farðu sem vinur
Við hjónin, Felix og Sylwia, höfum nýverið fest rætur í litlu þorpi rétt utan við Strasbourg – í hinu töfrandi héraði Alsace. Hér bjóðum við upp á meira en bara gistingu: við bjóðum upplifun.
🏡 Gisting
Þú gistir í rúmgóðri 39m² hjónasvítu á annarri hæð með sérbaðherbergi og sérsalerni. Innifalin er dásamlegur morgunverður – sniðinn að þínum óskum.
🍽 Aðstaða og afslöppun
Gestir hafa fullan aðgang að eldhúsi, grilli og 800 m² garði sem skiptist í sólríka suðurhlið og skuggsælt trjálendi – tilvalið bæði til að njóta og hvílast.
🧳 Aukagisting ef vinahjón vilja slást í för
Á hæðinni er einnig minna herbergi sem hægt er að fá leigt með, t.d. ef vinir vilja koma saman. Þá deila þeir baðherbergi svítunnar, en aukasalerni er einnig á neðri hæð.
🚐 Samgöngur
EasyJet flýgur beint frá Íslandi til Basel tvisvar í viku (aðfararnætur miðvikudaga og sunnudaga). Ferðin tekur um 1 klst 15 mín. Við bjóðum upp á akstur fyrir 120€ hvora leið – ferð með íslenskum bílstjóra, upplýsingar og góðan félagsskap. Einnig eru lestarferðir milli Basel og Strasbourg sem við getum hjálpað þér að bóka.
🗺 Aðstoð við skipulag
Við veitum persónulega aðstoð við bókanir, leiðsögn, val á veitingastöðum, lestarmiða, gönguleiðum og viðburðum – eftir áhuga hvers og eins. Þú færð aðgang að svæðinu eins og heimamaður.
🍷 Hálft fæði og kvöldmatur
Ef þú vilt, getur þú valið hálft fæði: morgunverður + kvöldmatur eða hádegismatur eftir samkomulagi.
🎯 Hverjir henta helst? Við viljum gjarnan fá til okkar rólynt fólk með áhuga á mat og menningu – fólk sem þráir gæði, ró og góðar samverustundir frekar en ódýr ferðalög eða partýferðir.
Þetta er heimili okkar og upplifunin persónuleg. Við eigum þrjá hunda, svo við tökum einungis á móti hundavænu fólki.
💬 Við tölum íslensku, ensku, frönsku, pólsku og spænsku.
💶 Verð:
60€ á mann per nótt (minnsta kosti 2 manns) – með morgunverði og aðgangi að öllu
80€ á mann per nótt með hálfu fæði
120€ ferð á/af Basel flugvelli
Privat hálfs- og heilsdagsferðir verða líka í boði gegn hæfilegu gjaldi. Frekari upplýsingar munu birtast hér á síðunni á næstu dögum og vikum. Engin föst lengd – þú dvelur eins lengi og það er laust.
📩 Hafðu samband beint hér á síðunni
Ef þú ert forvitinn, spenntur eða bara með spurningar – sendu okkur skilaboð. Við viljum gjarnan hjálpa þér að skipuleggja ferð þar sem þú færð að njóta staðarins á heimamannslegan hátt.

17/08/2025

Kvöldganga í Alsace

08/07/2025

Þessi kemur í heimsókn á hverju kvöldi að sækja matinn sinn.

29/06/2025

Strasbourg! Borgin með flestar brýrnar, alls 230 stykki. Thank you very much. Ógleymanleg upplifun við bakka Rínarfljóts OG VIÐ HEFUM ENNÞÁ LAUST MILLI 2 OG 18 JÚLÍ.

28/06/2025

📅 Enn er laust hjá okkur milli 2. og 18. júlí – tilvalið tækifæri til að koma og slaka á í rólegu og persónulegu umhverfi.

📩 Hafðu samband í einkaskilaboðum til að fá nánari upplýsingar.

Kaysersberg í Alsace
18/06/2025

Kaysersberg í Alsace

13/06/2025
💦 Elskarðu heitan pott, gufu og kyrrð? Þá áttu eftir að elska þetta... 🌿Ef þú hefur gaman af spa-menningu, þá er Alsace ...
13/06/2025

💦 Elskarðu heitan pott, gufu og kyrrð? Þá áttu eftir að elska þetta... 🌿
Ef þú hefur gaman af spa-menningu, þá er Alsace og nágrenni sannkallaður griðastaður – og við erum staðsett beint í hjarta hennar. Hvort sem þig langar í marmaraskreyttan borgarbaðstað, heitan útipott eða rómverskt ritual – þá er þetta fyrir þig.

🛁 Hápunktar spa-menningar í nágrenninu:
🏛 Bains Municipaux – Strasbourg
Enduruppgerður sögulegur baðstaður í hjarta Strasbourg.
• Inn- og útilaug, gufubað, sána, heitir pottar, saltklefi
• Art Nouveau bygging með nútímalegu spa aðgengi
• Fullkomið til að hefja eða enda ferðadaginn í ró og slökun
🧖‍♀️ Baden-Baden – aðeins 1 klst. í burtu
Einn frægasti spa-bær Evrópu, með rætur allt aftur til Rómverja:
• Friedrichsbad – 17 þrepa rómversk-írsk baðupplifun, með blöndu af heitum laugum, gufu og sánum í tímalausri kyrrð
• Caracalla Therme – fjölskylduvæn heilsulind með útilaugum, nuddpottum, saunasvæði og slökunarsvæðum (algjör snilld)

♨️ Annað sem vert er að skoða (allt innan 1–1,5 klst. aksturs):
• Vita Classica í Bad Krozingen – þýsk nákvæmni í afslöppun! Spa með klassískum arkitektúr, heilsubætandi vatni, gufum og nuddpottum.
• Cassiopeia Therme í Badenweiler – friðsælt heilsulindasvæði með rómversku gufubaði, útipottum, vínakraútsýni og heilsumeðvitaðri þjónustu.

🛏️ Gistu hjá okkur og njóttu spa-dags án streitu
Við erum staðsett í rólegu hverfi rétt utan við Strasbourg – með gistingarpláss fyrir allt að 6 manns, morgunverð, gróskumikinn garð og aðstoð við að skipuleggja spa-ferðina þína.
Við bjóðum jafnvel upp á akstur fram og til baka gegn vægu gjaldi.

📩 Sendu okkur skilaboð og við hjálpum þér að skipuleggja slökun sem þú átt eftir að muna lengi.
Hvort sem þú ert að leita að djúpslökun eða einfaldri vellíðan, þá erum við réttur staður til að byrja.

Adresse

Strasbourg

Notifications

Soyez le premier à savoir et laissez-nous vous envoyer un courriel lorsque Upplifun í hjarta Alsace publie des nouvelles et des promotions. Votre adresse e-mail ne sera pas utilisée à d'autres fins, et vous pouvez vous désabonner à tout moment.

Raccourcis

Partager

Catégorie