Don Benito, Los Balcones - Torrevieja Spánn

Don Benito, Los Balcones - Torrevieja  Spánn Información de contacto, mapa y direcciones, formulario de contacto, horario de apertura, servicios, puntuaciones, fotos, videos y anuncios de Don Benito, Los Balcones - Torrevieja Spánn, Viajes y transporte, Don Benito, Los Balcones, Torrevieja.

28/02/2025

Núna hef ég breytt aðeins í húsinu þannig að herbergið á neðri hæðinni er með tvö einstaklingsrúm. Húsið tekur því 6 í gistingu, plús tvo í svefnsófa í stofunni. Einnig er rúm fyrir ungabarn til staðar.

Eitthvað af lausum tíma í sumar og haust - er farin að bóka veturinn 2025-2026 líka ef einhver vill vera mjjög tímanlega.

Áhugasamir geta sent mér skilaboð

18/11/2023

Eftir 11 frábæra daga hér í sælunni erum við á heimleið í bili. Núna getum við boðið uppá hús og bíl til leigu saman 😊 áhugasamir geta sent skilaboð fyrir verð og lausar dagsetningar !

19/10/2023

Raðhús í Torrevieja til leigu ! Kjarninn heitir Don Benito og er í Los Balcones hverfinu. Ca 40 mín akstur frá Alicante flugvelli, 10 mín akstur í La Zenia mollið.

Nýtt raðhús á 2 hæðum, 3 svefnherbergi, 3 baðherbergi. 34fm þaksvalir með sólbaðsaðstöðu, sundlaug í garðinum.

Svefnpláss fyrir samtals 7 aðila ef með er talinn svefnstófi í stofu. Góð aðstaða og allt nauðsynlegt til staðar.

Bjóðum mjög hagstæða leigu - áhugasamir geta sent skilaboð varðandi lausar dagsetningar og aðrar fyrirspurnir.

Loksins er að koma fín mynd á þetta hjá okkur!  Húsið er 99% klárt, aðeins er beðið eftir að fá húsgögnin sem eiga að ve...
16/10/2023

Loksins er að koma fín mynd á þetta hjá okkur! Húsið er 99% klárt, aðeins er beðið eftir að fá húsgögnin sem eiga að vera úti

11/10/2023

Hér er allt að verða klárt ! erum búin að vera á hraðferð út um allt að græja alls konar og fátt sem vantar núna nema útihúsgögnin. Þau verða komin áður en ég fer heim aftur í lok október. Tókum smá pásu í dag, svona að mestu leyti amk, þar sem sinna þurfti vinnunni eitthvað líka. Fögnum þjóðhátíðardegi Spánar sem er víst á morgun með því að halda áfram að gera fínt!

Hlakka til að geta sýnt ykkur myndir þegar að búið er að koma öllu fyrir.

30/09/2023

það er aaaalveg að koma að því að við Gunnar förum út til að gera húsið fínt og klárt í notkun. Eins gott eiginlega því að fyrstu leigjendurnir eru væntanlegir í lok október.

Við fengum húsið afhent í lok ágúst og húsgögn hafa verið flutt inn en allt annað er eftir. Það verður því tekin massív innkaupaferð þegar að við mætum á svæðið.

erum komin með lista yfir alls konar sem að við teljum vanta til að húsið sé klárt í notkun en erum pottþétt að gleyma einhverju!

Hvað myndir þú segja að væri ómissandi í svona húsnæði þannig að fríið væri ekki í klúðri?

Skrapp i smá eftirlitsferð í Don Benito 😊 það sem okkur er farið að hlakka til að fá afhent og gert húsið klárt í notkun
24/02/2023

Skrapp i smá eftirlitsferð í Don Benito 😊 það sem okkur er farið að hlakka til að fá afhent og gert húsið klárt í notkun

19/01/2023

Húsið er staðsett í Los Balcones hverfinu í Torrevieja, um 45 mín akstur frá flugvellinum í Alicante.

Í göngufæri er bæði matvöruverslun, veitingastaðir, sjúkrahús, bensínstöð ofl. Stutt í allar áttir og endalausir möguleikar til afþreyingar.

19/01/2023

Smá lýsing á húsinu...

Húsið er á tveimur hæðum, auk 34 fm þaksvala. Á neðri hæðinni er stofa, eldhús, þvottahús, eitt svefnherbergi og baðherbergi m/sturtu. Í því herbergi verður svefnpláss fyrir einn, hugsanlega tvo.

Á efri hæð eru tvö rúmgóð herbergi, bæði með tvíbreiðu rúmi og baðherbergi m/sturtu inn af herberginu. Úr stærra herberginu er útgengi út á svalir og útsýni yfir sundlaugargarðinn.

Á þaksvölum verður góð aðstaða til að liggja og slaka á í sólinni.
Í garðinum framan við verður einnig aðstaða til sólbaða og slökunar. Garðurinn snýr inn í sundlaugargarðinn.

Í húsinu verður allt sem til þarf, í raun allt nema matur í ísskápnum.

08/12/2022

Þegar farið er að frjósa þá er óneitanlega gott að hugsa til þess að það styttist í afhendingu á húsinu okkar. Við vorum úti á Spáni í október og fórum þá og tékkuðum á stöðunni og þetta potast áfram. Enn er talað um afhendingu í mars 2023.

Erum farin að velta fyrir okkur útleigu á húsinu, þeir sem hafa áhuga á að fá upplýsingar - sendið okkur skilaboð :)

Húsið verður útbúið fyrir 6 fullorðna og að auki verður svefnsófi í stofu. Einnig verður að sjálfsögðu allt það nauðsynlegasta til staðar, ss eins og uppþvottavél, því hver nennir að eyða fríinu í að vaska upp! Þrjú baðherbergi, öll með sturtu.

Dirección

Don Benito, Los Balcones
Torrevieja

Página web

Notificaciones

Sé el primero en enterarse y déjanos enviarle un correo electrónico cuando Don Benito, Los Balcones - Torrevieja Spánn publique noticias y promociones. Su dirección de correo electrónico no se utilizará para ningún otro fin, y puede darse de baja en cualquier momento.

Compartir