Barcelona íbúð til leigu - www.sumarhusaspani.is

Barcelona íbúð til leigu - www.sumarhusaspani.is Falleg 136fm íbúð á fjórðu hæð á göngugötunni Carrer de Ferran. breiðri dýnu og hentar því vel fyrir 2-3 börn. Svefnpláss er fyrir 6-8 manns með börnum.

Falleg, mjög björt og vel skipulögð 136fm íbúð í miðju gotneska hverfinu í húsi byggðu 1852. Íbúðin er á fjórðu hæð á skemmtilegu göngugötunni Calle Ferran, sem tengir saman Römbluna og Plaza St. Jaume torgið. Íbúðin vísar í suður,

Íbúðin skiptist í bjarta og rúmgóða stofu með borðstofu með stóru borði og stólum fyrir 8 manns, út frá stofunni eru tvær litlar suðursvalir sem vísa út á Calle Ferran

með æðislegu útsýni. WIFI er í íbúðinni og loftkæling er í stofu, eldhúsi og svefnherbergisgangi.

Þrjú góð svefnherbergi eru í íbúðinni sem öll hafa ný hjónarúm og einnig er efri koja í einu svefnherberginu með 140 cm. Svefnherbergin eru í hinum enda íbúðarinnar, burt frá skarkala götunnar, og vísa inní mjög hljóðleg innri “patio”. Eldhúsið er fullbúið með eldhúskrók, stórum ísskáp, uppþvottavél, gaseldavél, kaffivél, blandara, brauðrist og öllum helstu áhöldum til matargerðar. Baðherbergi með sturtu og baðkari, einnig er þvottavél í íbúðinni. Staðsetningin er eins miðsvæðis eins og hugsast getur en allar helstu nauðsynjar eru í göngufæri. Hverfið er þekkt fyrir mikið af skemmtilegum kaffihúsum og veitingastöðum. Stómarkaður er á næsta horni, ströndin er í 10 mínútna göngufæri, og ef það á að ferðast eitthvað lengra um borgina þá eru bæði græna og gula línan á næsta horni.

Íbúðin er sérstaklega vel skipulögð og hentar fullkomnlega fyrir par, tvö pör, þrjú pör eða 1-2 fjölskyldur með börn. Vikuleiga er 980€ m.v. 6 gesti - greitt er aukalega 50€ pr. haus fyrir 7 og 8 gestinn. Stakar nætur á 150€
Lágmarksleiga er 3 nætur. Nánari uppl. um verð og lausar vikur má finna inná www.sumarhusaspani.is

Hæhæ,Við erum byrjuð að leigja út íbúðina aftur frá og með byrjun júlí. ❤️www.sumarhusaspani.is
20/05/2024

Hæhæ,
Við erum byrjuð að leigja út íbúðina aftur frá og með byrjun júlí. ❤️
www.sumarhusaspani.is

Hæ,Komið gott af snjónum? 😊Erum að bóka núna þessa fallegu íbúð á Barcelona á besta stað. Sjáumst hress.
01/03/2020

Hæ,
Komið gott af snjónum? 😊
Erum að bóka núna þessa fallegu íbúð á Barcelona á besta stað. Sjáumst hress.

🇪🇸🌞⛳️Halló heimur - við erum aftur byrjuð að leigja út þessa yndislegu íbúð í Barcelona - 3 svefnherbergi og geggjuð sta...
09/04/2019

🇪🇸🌞⛳️Halló heimur - við erum aftur byrjuð að leigja út þessa yndislegu íbúð í Barcelona - 3 svefnherbergi og geggjuð staðsetning rétt hjá Römblunni. Íbúðin er laus í vor og allt sumar, fyrstur kemur fyrstur fær......sendið okkur póst á [email protected] eða skilaboð hér.
👉 Fleiri myndir og upplýsingar um íbúðina má sjá inná www.sumarhusaspani.is/barcelona

21/05/2017

Íbúðin er laus 21.-27. Maí og 20.-30. Júní!!

Barcelona borg er rosalega falleg og alveg sér á báti. 😊Kíktu á sumarhusaspani.is og skoðaðu hvað er laust í þessari fal...
19/04/2017

Barcelona borg er rosalega falleg og alveg sér á báti. 😊
Kíktu á sumarhusaspani.is og skoðaðu hvað er laust í þessari fallegu íbúð.
Gleðilegt sumar! 😊

Vegna forfalla voru að losna vikur hjá okkur í Barcelona íbúðinni í júní og júlí í sumar. Nú er málið að skella sér í þe...
18/04/2017

Vegna forfalla voru að losna vikur hjá okkur í Barcelona íbúðinni í júní og júlí í sumar. Nú er málið að skella sér í þessa fallegu borg og njóta alls þess sem hún hefur uppá að bjóða.
Sendið okkur skilaboð eða póst á [email protected]

Gistirými fyrir 6-8. Falleg 136fm íbúð á góðum stað, stutt að rölta á Römbluna og niður á strönd. Veitingastaðir og verslanir eru í göngufæri.

Lausar vikur má alltaf finna inná heimasíðunni okkar og hér er smá update :-) WOW er t.d. að fljúga beint 2x í viku í fe...
28/01/2017

Lausar vikur má alltaf finna inná heimasíðunni okkar og hér er smá update :-)
WOW er t.d. að fljúga beint 2x í viku í feb og mars og við eigum laust þá fyrir ykkur....þetta er ekki spurning 👍☀️skella sér ;-)

11/09/2016

Hæ allir!
Ertu að fara í skóla í Barcelona?
Íbúðin verður leigð í vetur frá nóv- umþb apríl. (samningsatriði) Hafið samband ef það hentar. Takk takk

Nýja heimasíðan okkar er komin í loftið og þar er alltaf hægt að sjá lausa daga/vikur í íbúðinni okkar í Barcelona up to...
11/03/2016

Nýja heimasíðan okkar er komin í loftið og þar er alltaf hægt að sjá lausa daga/vikur í íbúðinni okkar í Barcelona up to date. - Við eigum lausar vikur í apríl og maí sem er frábær tími til að skreppa til Barcelona og einnig í sumar. Hlökkum til að heyra frá ykkur.

Á dögunum opnaði Sumarhusaspani.is nýja snjallvæna vefsíðu. Nýja heimasíðan keyrir á WordPress, virkar betur í snjalltækjum og hefur fullkomna leitarvél á forsíðu.

Skoða nýja vefinn > www.sumarhusaspani.is

Kíkja til Barcelona í sumar? :)Frábær 140 fm íbúð með 3 svefnherbergjum til leigu frá 1.apríl.
19/02/2016

Kíkja til Barcelona í sumar? :)
Frábær 140 fm íbúð með 3 svefnherbergjum til leigu frá 1.apríl.

Dirección

Barcelona
08002

Notificaciones

Sé el primero en enterarse y déjanos enviarle un correo electrónico cuando Barcelona íbúð til leigu - www.sumarhusaspani.is publique noticias y promociones. Su dirección de correo electrónico no se utilizará para ningún otro fin, y puede darse de baja en cualquier momento.

Contacto La Empresa

Enviar un mensaje a Barcelona íbúð til leigu - www.sumarhusaspani.is:

Compartir

Categoría